Kjarasamningur milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og 11 aðildarfélaga BSRB var undirritaður á áttunda tímanum laugardaginn 10. mars 2023. Í kjölfarið var öllum boðuðum verkfallsaðgerðum í tengslum við deiluna aflýst.
Stéttarfélögin sem um ræðir eru: FOSA, FOSS, Kjölur, Sameyki, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Suðurnesja og Starfsmannafélag Vestmannaeyja.
Sameyki
Félagsmenn Sameykis, sem starfa hjá stjórnsýslu- og fjármálasviði auk skipulags- og umhverfissviðs hjá Akraneskaupstað samþykktu eftirfarandi vinnustöðvanir:
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar á stjórnsýslu- og fjármálasviði hjá Akraneskaupstað.
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 laugardaginn 17. júní 2023 hjá félagsfólki sem starfar á skipulags- og umhverfissviði hjá Akraneskaupstað.
48 (63,2%) af þeim 76, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 43 (89,6%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
Félagsmenn Starfsmannafélags Mosfellsbæjar, sem starfa í leikskólum, bæjarskrifstofum, sundlaugum & íþróttamiðvöðum auk Þjónustustöðvar hjá Mosfellsbæ samþykktu eftirfarandi vinnustöðvanir:
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar í leikskólum hjá Mosfellsbæ.
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar á bæjarskrifstofu hjá Mosfellsbæ.
- Ótímabundið frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 hjá félagsfólki sem starfar í sundlaugum og íþróttamiðstöðvum hjá Mosfellsbæ.
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 laugardaginn 17. júní 2023 hjá félagsfólki sem starfar í Þjónustustöð hjá Mosfellsbæ.
352 (75,1%) af þeim 469, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 340 (96,6%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
Starfsmannafélag Kópavogs
Félagsmenn Starfsmannafélags Kópavogs, sem starfa í leikskólum, fjármálasviði á bæjarskrifstofu og sundlaugum hjá Kópavogsbæ samþykktu eftirfarandi vinnustöðvanir:
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar í leikskólum hjá Kópavogsbæ.
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar í þjónustuveri á stjórnsýslusviði og við innheimtu á fjármálasviði á bæjarskrifstofu hjá Kópavogsbæ
- Ótímabundið frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 hjá félagsfólki sem starfar í sundlaugum hjá Kópavogsbæ.
742 (59,6%) af þeim 1.245, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 698 (94,1%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
Starfsmannafélag Húsavíkur
Félagsmenn Starfsmannafélags Húsavíkur, sem starfa í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík, samþykktu eftirfarandi vinnustöðvanir:
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík.
6 (100%) af þeim 6, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 5 (83,3%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
FOSS
Vinnustöðvanir félagsmanna FOSS ná til Árborgar, Rangárþings eystra, Ölfus, Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar og Rangárþings ytra – sjá:
Starfsmannafélag Suðurnesja
Vinnustöðvanir félagsmanna Starfsmannafélags Suðurnesja ná til Voga, Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar – sjá:
Kjölur
Vinnustöðvanir félagsmanna Kjalar ná til Akureyrarbæjar, Borgarbyggðar, Dalvíkurbyggðar, Fjallabyggðar, Grundafjarðarbæjar, Ísafjarðarbæjar, Skagafjarðar, Snæfellsbæjar og Stykkishólms – sjá:
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Félagsmenn Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, sem starfa í þjónustuveri bæjarskrifstofu og sundlaugum Hafnarfjarðarbæjar, samþykktu eftirfarandi vinnustöðvanir:
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar í þjónustuveri bæjarskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar.
- 6 (85,7%) af þeim 7, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 6 (100%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Ótímabundið frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 hjá félagsfólki sem starfar í sundlaugum hjá Hafnarfirði.
- 37 (71,2%) af þeim 52, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 34 (91,9%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
Starfsmannafélag Garðabæjar
Boðaða var til allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna FOSS hjá Garðabæ. Eftirfarandi vinnustöðvanir voru samþykktar:
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar í leikskólum hjá Garðabæ.
- Frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 5. júlí 2023 hjá félagsfólki sem starfar á bæjarskrifstofum hjá Garðabæ.
- Ótímabundið frá klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 hjá félagsfólki sem starfar í í íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og við Breiðumýri á Álftanesi hjá Garðabæ.
379 (55,9%) af þeim 678, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 336 (88,7%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
Félagsmenn Kjalar – stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, sem starfa í sundlaugum og íþróttamannvirkjum, hafa greitt atkvæði um vinnustöðvanir á eftirfarandi starfsstöðvum:
Félagsmenn hjá Akureyrarbæ
- 27 (77,1%) af þeim 35, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 25 (92,6%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Félagsmenn hjá Borgarbyggð
- 15 (93,8%) af þeim 16, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 14 (93,3%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Félagsmenn hjá Dalvíkurbyggð
- 5 (71,5%) af þeim 7, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 5 (100%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Félagsmenn hjá Fjallabyggð
- 7 (77,8%) af þeim 9, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 6 (85,7%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Félagsmenn hjá Fjarðabyggð
- 5 (100%) af þeim 5, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 5 (100%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Félagsmenn hjá Skagafirði
- 12 (80,0%) af þeim 15, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 12 (100%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Félagsmenn hjá Snæfellsbæ
- 9 (81,9%) af þeim 11, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 8 (88,9%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Félagsmenn hjá Vesturbyggð
- 3 (100%) af þeim 3, sem voru á kjörskrá, greiddu atkvæði. 3 (100%) atkvæði féllu með verkfallsboðun.
- Vinnustöðvanir munu hefjast kl. 00:00 laugardaginn 27. maí 2023 og standa til kl. 23:59 mánudaginn 29. maí 2023.
Tilkynnt var um vinnustöðvanir meðal félagsmanna FOSS, í þremur sveitarfélögum, auk félagsmanna Starfsmannafélaga Hafnarfjarðar, Suðurnesja og Vestmannaeyja.
FOSS stéttarfélag í almannaþjónustu
Hveragerðisbær
Vinnustöðvanir ná til félagsmanna FOSS, sem starfa á leikskólum hjá Hveragerðisbæ, og hefjast á miðnætti aðfaranætur 22. maí 2023. Þær verða sem hér segir:
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 22. maí 2023 til klukkan 12:00 mánudaginn 22. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 23. maí 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 23. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 fimmtudaginn 25. maí 2023 til klukkan 12:00 fimmtudaginn 25. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 30. maí 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 30. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 31. maí 2023 til klukkan 12:00 fimmtudaginn 1. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 12:00 mánudaginn 5. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 6. júní 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 6. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 7. júní 2023 til klukkan 12:00 miðvikudaginn 7. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 fimmtudaginn 8. júní 2023 til klukkan 12:00 fimmtudaginn 8. júní 2023
Á kjörskrá voru 174 félagsmenn FOSS, sem vinnustöðvanir taka til. Af þeim greiddu 142 (81,6%) atkvæði. Atkvæði með boðuninni voru 130 (91,5%). Atkvæði gegn boðun, eða auð/ógild, voru 12 (8,5%).
Sveitarfélagið Árborg
Vinnustöðvanir ná til félagsmanna FOSS, sem starfa á leikskólum hjá Sveitarfélaginu Árborg. Þær ná til sömu tímasetninga og í tilfelli Hveragerðisbæjar.
Á kjörskrá voru 358 félagsmenn FOSS, sem vinnustöðvanir taka til. Af þeim greiddu 268 (74,7%) atkvæði. Atkvæði með boðuninni voru 235 (87,7%). Atkvæði gegn boðun, eða auð/ógild, voru 33 (12,3%).
Sveitarfélagið Ölfus
Vinnustöðvanir ná til félagsmanna FOSS, sem starfa í grunnskóla, í skólaeldhúsi og á hafnarsvæði sveitarfélagsins Ölfus. Þær hefjast á miðnætti aðfaranætur 22. maí, og verða sem hér segir:
Á eftirtöldum dögum skal vinnustöðvun ná til allra félagsmanna sem starfa í grunnskólum og í skólaeldhúsi hjá sveitarfélaginu Ölfus:
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 22. maí 2023 til klukkan 12:00 mánudaginn 22. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 23. maí 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 23. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 24. maí 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 24. maí 2023
Á eftirtöldum dögum skal vinnustöðvun ná til allra félagsmanna FOSS sem starfa á hafnarsvæði sveitarfélagsins Ölfus:
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 22. maí 2023 til klukkan 23:59 mánudaginn 22. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 24. maí 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 24. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 föstudaginn 26. maí 2023 til klukkan 23:59 föstudaginn 26. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 31. maí 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 31. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 föstudaginn 2. júní 2023 til klukkan 23:59 föstudaginn 2. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 23:59 mánudaginn 5. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 7. júní 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 7. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 föstudaginn 9. júní 2023 til klukkan 23:59 föstudaginn 9. júní 2023
Á kjörskrá voru 99 félagsmenn FOSS, sem vinnustöðvanir taka til. Af þeim greiddu 77 (77,8%) atkvæði. Atkvæði með boðuninni voru 70 (90,9%). Atkvæði gegn boðun, eða auð/ógild, voru 7 (9,1%).
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Vinnustöðvanir ná til félagsmanna Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, sem starfa í grunnskólum og frístundaheimilum í sveitarfélaginu. Þær hefjast á miðnætti aðfaranætur 22. maí, og verða sem hér segir:
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 22. maí 2023 til klukkan 12:00 mánudaginn 22. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 23. maí 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 23. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 24. maí 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 24. maí 2023
Á kjörskrá voru 271 félagsmenn Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, sem vinnustöðvanir taka til. Af þeim greiddu 194 (71,6%) atkvæði. Atkvæði með boðuninni voru 185 (95,4%). Atkvæði gegn boðun, eða auð/ógild, voru 9 (4,6%).
Starfsmannafélag Suðurnesja
Vinnustöðvanir ná til félagsmanna Starfsmannafélags Suðurnesja, sem starfa í grunnskólum. Þær hefjast á miðnætti aðfaranætur 23. maí, og verða sem hér segir:
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 23. maí 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 23. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 24. maí 2023 til klukkan 23:59 miðvikudaginn 24. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 fimmtudaginn 25. maí 2023 til klukkan 12:00 fimmtudaginn 25. maí 2023
Á kjörskrá voru 166 félagsmenn Starfsmannafélags Suðurnesja, sem vinnustöðvanir taka til. Af þeim greiddu 148 (89,2%) atkvæði. Atkvæði með boðuninni voru 145 (97,8%). Atkvæði gegn boðun, eða auð/ógild, voru 3 (2,2%).
Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Vinnustöðvanir ná til félagsmanna Starfsmannafélags Vestmannaeyja, sem starfa á leikskólum og hafnarsvæði Vestmannaeyjabæjar.
Á eftirtöldum dögum skal vinnustöðvun ná til allra félagsmanna sem starfa á leikskólum hjá Vestmannaeyjabæ:
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 22. maí 2023 til klukkan 12:00 mánudaginn 22. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 23. maí 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 23. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 fimmtudaginn 25. maí 2023 til klukkan 12:00 fimmtudaginn 25. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 30. maí 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 30. maí 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 31. maí 2023 til klukkan 12:00 fimmtudaginn 1. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 mánudaginn 5. júní 2023 til klukkan 12:00 mánudaginn 5. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 þriðjudaginn 6. júní 2023 til klukkan 12:00 þriðjudaginn 6. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 miðvikudaginn 7. júní 2023 til klukkan 12:00 miðvikudaginn 7. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 fimmtudaginn 8. júní 2023 til klukkan 12:00 fimmtudaginn 8. júní 2023
Á kjörskrá voru 18 félagsmenn Starfsmannafélags Vestmannaeyja, sem vinnustöðvanir taka til. Af þeim greiddu 16 (88,9%) atkvæði. Atkvæði með boðuninni voru 16 (100%).
Á eftirtöldum dögum skal vinnustöðvun ná til allra félagsmanna sem starfa á hafnarsvæði Vestmannaeyjabæjar:
- Frá og með klukkan 00:00 fimmtudaginn 1. júní 2023 til klukkan 23:59 fimmtudaginn 1. júní 2023
- Frá og með klukkan 00:00 fimmtudaginn 8. júní 2023 til klukkan 23:59 fimmtudaginn 8. júní 2023
Á kjörskrá voru 12 félagsmenn Starfsmannafélags Vestmannaeyja, sem vinnustöðvanir taka til. Af þeim greiddu 10 (83,3%) atkvæði. Atkvæði með boðuninni voru 10 (100%).