Skip to main content

Kröfugerð

Misjafnt er hvernig samningsaðilar nálgast mótun kröfugerðar fyrir kjarasamningaviðræður, en mikilvægt er að vera vel undirbúinn og með vel undirbúna og vel hugsaða kröfugerð þegar kemur að samningum.

Markmið

Hvert er markmiðið með gerð fyrirhugaðra kjarasamninga?

Samningstími

Til hve langs tíma er vilji til að gera samninginn?

Launaliður

Hvaða launabreytingar er farið fram á – og miðað við hvaða dagsetningar? Hvað með lágmarkslaun? Eiga allir að hækka jafnt?

Taxtar

Þarf að gera breytingar á ríkjandi taxtakerfi? Einfalda, fjölga þrepum …?

Ákveðnir hópar

Þarf að taka tillit til ákveðinna hópa, t.d. ungmenna, starfsfólks undir tvítugu, eldra starfsfólks, þá yfir sjötugu eða starfsfólk innan ákveðinnar greinar?

Lífeyrisréttindi

Eru kröfur sem tengjast lífeyrisréttindum?

Veikindaréttur

Eru kröfur sem tengjast veikindarétti? Hvað með veikindi barna, maka, foreldra? Kostnað við vottorð eða læknisheimsóknir?

Starfsmenntamál

Eru kröfur í tengslum við námsleyfi, viðurkenningu á námskeiðum, námskeiðsgreiðslur?

Önnur hagsmunamál

Er  gerð krafa um ákveðin hagsmunamál, eins og styttri vinnuviku, styttri viðveru, húsnæðismál o.s.frv.?

Dæmi um kröfugerðir

Sameyki >
Starfsgreinasambandið >
VR >