Ásmundur átti fund með Bryndísi Hlöðversdóttur, ríkissáttasemjara um stöðuna í kjarasamningagerðinni og starfsemi embættisins.
[/av_textblock]
[av_gallery ids=’4902,4900,4901′ style=’thumbnails’ preview_size=’portfolio’ crop_big_preview_thumbnail=’avia-gallery-big-crop-thumb’ thumb_size=’portfolio’ columns=’5′ imagelink=’lightbox’ lazyload=’avia_lazyload’ admin_preview_bg=”]
Dagskrá fundarins var tvískipt en fyrir hádegi ræddu ríkissáttasemjari og starfsfólk embættisins stöðuna í kjarasamningunum og gerðu drög að starfsáætlun fyrir árin 2020-2021.
Eftir hádegi bættust aðstoðarsáttasemjararnir í hópinn. Þá var staðan í kjarasamningum rædd, en allir kjarasamningar opinberra starfsmanna eru nú lausir. Þrír gestir tóku til máls á fundinum; Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði frá gerð Lífskjarasamningsins, Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri, ræddi efnahagslegt mikilvægi kjarasamninganna og Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, sagði frá gangi viðræðna og verkefnunum framundan í samningagerð BHM og viðsemjenda.
Að auki fjölluðu Bryndís Hlöðversdóttir, Aðalsteinn Leifsson og Ástráður Haraldsson um reynslu sína af aðstoðarsáttasemjarafyrirkomulaginu.
[/av_textblock]
[av_gallery ids=’4859,4863,4865,4866,4868,4871,4877,4882,4883′ style=’thumbnails’ preview_size=’portfolio’ crop_big_preview_thumbnail=’avia-gallery-big-crop-thumb’ thumb_size=’portfolio’ columns=’5′ imagelink=’lightbox’ lazyload=’avia_lazyload’ admin_preview_bg=”]
VLFA, Verkalýðsfélag Akranes hefur vísað kjaradeilu við Samband íslenskra sveitarfélaga til sáttameðferðar.
Fyrsti fundur hefur verið boðaður miðvikudaginn 21. ágúst kl. 09.00.
17 félög innan SGS, Starfsgreinasambands Íslands, höfðu áður vísað kjaradeilu sinni við SNS til ríkissáttasemjara svo og Efling, þannig að nú hafa öll 19 félög SGS óskað eftir milligöngu sáttasemjara í viðræðum við sveitarfélögin.
Vísun deilunnar var dregin til baka þann 6. ágúst síðastliðinn og því var enginn fundur haldinn í málinu.
FÍF, Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað vinnustöðvun í formi þjálfunarbanns allra
félagsmanna í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra sem starfa hjá Isavia Ohf. frá og með 14.
júní 2019 klukkan 12:00, ótímabundið eða þar til nýr kjarasamningur hefur verið samþykktur.
Þjálfunarbannið tekur til allra tíma sólahringsins
Að samfloti iðnaðarmanna standa Rafiðnaðarsamband Íslands, VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Samiðn, Matvís, Félag hársnyrtisveina, Grafía og Byggiðn.
Málinu var vísað til ríkissáttasemjara þann 26. febrúar síðastliðinn og í því voru haldnir 22 fundir undir stjórn ríkissáttasemjara, bæði vinnufundir og formlegir sáttafundir. Alls stóðu fundir í um 120 klukkustundir.
Áætlað er að samningarnir taki til um 13.000 manns.
[/av_textblock]
[av_gallery ids=’4589,4583,4602,4609,4608,4584,4597,4595,4612,4613,4619,4617,4616′ style=’thumbnails’ preview_size=’portfolio’ crop_big_preview_thumbnail=’avia-gallery-big-crop-thumb’ thumb_size=’portfolio’ columns=’5′ imagelink=’lightbox’ lazyload=’avia_lazyload’ admin_preview_bg=”]