Skip to main content

Aðstoðarsáttasemjarar

By Frétt frá ríkissáttasemjara

Ríkissáttasemjari hefur tilnefnt hóp aðstoðarsáttasemjara á grundvelli heimildar í 4. mgr. 20. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938, en þar segir að ríkissáttasemjari geti tilnefnt aðstoðarsáttasemjara til að aðstoða sig við lausn vinnudeilu eða vinna sjálfstætt að lausn einstakrar vinnudeilu.  Framvegis mun einn eða fleiri úr þeim hópi vera kallaður til aðstoðar í hverju sáttamáli ásamt ríkissáttasemjara. Markmið breytinganna er að bæta þjónustu embættisins við aðila vinnumarkaðarins, með því að efla sáttamiðlun og stuðla að aukinni skilvirkni embættisins við kjarasamningagerðina.

Hóp aðstoðarsáttasemjara skipa:

Aðalsteinn Leifsson                        Framkvæmdastjóri hjá EFTA

Ástráður Haraldsson                      Héraðsdómari

Bergþóra Ingólfsdóttir                   Héraðsdómari

Elín Blöndal                                     Lögfræðingur og markþjálfi

Elísabet S. Ólafsdóttir                    Skrifstofustjóri ríkissáttasemjara

Guðbjörg Jóhannesdóttir              Sóknarprestur og MA í sáttamiðlun

Helga Jónsdóttir                             Lögfræðingur

Ingibjörg Þorsteinsdóttir              Héraðsdómari

Jóhann Ingi Gunnarsson              Sálfræðingur og ráðgjafi

Kristín Ingólfsdóttir                      Fyrrverandi rektor Háskóla Íslands

Magnús Jónsson                            Fyrrverandi Veðurstofustjóri

Þórður S. Gunnarsson                  Lögmaður

 

Þetta eru öflugir einstaklingar sem hafa mikla reynslu í farteskinu ýmist á sviði sáttamiðlunar, samningatækni, ráðgjafar, vinnuréttar eða stjórnunar sem án efa getur nýst vel við samningaborðið. Hópurinn hefur hist í tvígang og setið námskeið hjá okkur til að undirbúa sig undir verkefnið. Ég tel að einstaklega vel hafi tekist til við að manna þennan hóp og hlakka mikið til að vinna með þeim.

Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari

 

Nánari kynning á sáttasemjurunum og bakgrunni þeirra verður birt hér á heimasíðu embættisins von bráðar.

Kjarasamningur undirritaður

By Frétt frá ríkissáttasemjara

Samninganefndir Flugvirkjafélags Íslands og Bluebird undirrituðu kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara á öðrum tímanum í dag. Málinu var vísað til ríkissáttasemjara þann 9. nóvember 2018 og voru haldnir 6 fundir í málinu.

Nýi samningurinn gildir frá 1. febrúar 2018 til 1. febrúar 2021.

Námstefna í samningagerð 19.-21. nóvember

By Frétt frá ríkissáttasemjara

Fjórða námstefnan í samningagerð fór fram í Borgarnesi dagana 19.-21. nóvember. Námstefnuna sátu 70 þátttakendur frá mörgum aðilum vinnumarkaðarins. Á námstefnunni var fjallað um samskipti, lög og reglur á vinnumarkaði, efnahagslegt samhengi kjarasamninga, ábyrgð og skyldur samningafólks, kjarasamningagerð á tímum samfélagsmiðla og samningafærni.

Námstefna í samningagerð 5.-7. nóvember

By Frétt frá ríkissáttasemjara

Dagana 5.-7. nóvember fór námstefna í samningagerð fram í þriðja skipti á þessu ári. Námstefnan var haldin á B59 hótel í Borgarnesi og tóku yfir 70 mann þátt í henni. Á námstefnunni var fjallað um atriði á borð við góð samskipti, teymisvinnu, lagaumgjörð vinnumarkaðar, efnahagslegt samhengi kjarasamninga, kjarasamningagerð á tímum samfélagsmiðla, samskipti og ábyrgð samningafólks og samningafærni. Síðasta námstefna ársins verður haldin dagana 19.-21. nóvember.