Fyrsta skýrsla kjaratölfræðinefndar kemur út
Í dag klukkan 11.00 kynnti kjaratölfræðinefnd sína fyrstu skýrslu, Samningalotan 2019-2020, fyrir aðilum vinnumarkaðarins og strax í kjölfarið birtist hún opinberlega. Hægt er að sjá fundinn og skýrsluna á www.ktn.is
Skýrslan skiptist í fjóra meginkafla sem fjalla um efnahagsmál, umgjörð kjarasamninga, gerða kjarasamninga í yfirstandandi kjaralotu og mælingar Hagstofu Íslands á launaþróun sem flokkaðar eru eftir heildarsamtökum launafólks og launagreiðenda.
Í efnahagskafla er farið yfir áhrif kórónukreppunnar á efnahag og vinnumarkað og samanburður gerður á efnahagsspám fyrir og eftir heimsfaraldurinn. Viðbrögðum stjórnvalda er lýst og ljósi varpað á tvær nýlegar kreppur.
Meginefni skýrslunnar er um breytingar og dreifingu launa í yfirstandandi samningalotu samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Fjallað er um helsta inntak kjarasamninga, þ.á.m. launabreytingar og styttingu vinnutíma.
Í kafla um umgjörð kjarasamninga er lýst skipulagi samtaka á vinnumarkaði, lagaumhverfi og hlutverki ríkissáttasemjara. Þá fylgir skýrslunni yfirlit yfir gerða kjarasaminga.
Kjaratölfræðinefndin var skipuð af félags- og barnamálaráðherra 21. nóvember 2019 og samkvæmt skipunarbréfi skal hún draga saman og vinna úr talnaefni um launa- og efnahagsmál til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Markmiðið er að stuðla að sameiginlegum skilningi á eðli, eiginleikum og þróun hagtalna sem mestu varða við gerð kjarasamninga. Áformað er að skýrslur nefndarinnar komi út tvisvar á ári.
Aðild að kjaratölfræðinefnd eiga forsætisráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, BSRB, Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins og Hagstofa Íslands.
“Fyrsta skýrsla kjaratölfræðinefndar er unnin við þær óvenjulegu aðstæður að hraðar og miklar breytingar eru að verða á högum launafólks vegna kórónuveirufaraldursins. Það er von okkar að skýrslan nýtist samtökunum vel við mat á stöðu félagsmanna sinna,“ segir Edda Rós Karlsdóttir, formaður kjaratölfræðinefndar.
Fyrsta skýrsla kjaratölfræðinefndar
Miðvikudaginn 16. september 2020, kl. 11.00, verður kynnt skýrsla kjaratölfræðinefndar, nýs samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningslotuna sem hófst árið 2019, umfang kjarasamningagerðar, og þróun efnahagsmála og launa.
Kynningin verður í formi fjarfundar og hlekkur á hann birtur hér þegar nær dregur. Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra mun ávarpa fundinn og Edda Rós Karlsdóttir, formaður kjaratölfræðinefndar, kynna skýrsluna og gera grein fyrir helstu atriðum hennar. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.
Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Tekist hefur góð samstaða um þann grunn upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni og er það von nefndarinnar að þessi grunnur nýtist hagaðilum vel. Skýrslan er sú fyrsta í röð skýrslna, en gert er ráð fyrir að nefndin gefi framvegis út tvær á ári og verða þær gerðar aðgengilegar á nýjum vef kjaratölfræðinefndar.
SA hefur vísað kjaradeilu við Sjómannafélag Íslands v/félagsmanna SÍ á Herjólfi til ríkissáttasemjara.
Samningsaðilar gerðu samkomulag um nýja viðræðuáætlun í júlí þar sem stefnt var að því að viðræðunum yrði lokið fyrir 17. ágúst.
Það tókst ekki og er kjaradeilan því komin á borð ríkissáttasemjara aftur.
Þrjú sáttamál bættust á borð ríkissáttasemjara júlí.
Verkfræðingafélag Íslands vísaði kjaradeilu við Landsnet vegna tæknfólks,
VM, RSÍ v/FÍR og FRV, FIT, VR og Hlíf vísuðu deilu sinni við Rio Tinto í Straumsvík
og VM, Félag Vélstjóra og málmtæknimanna v/félagsmanna er starfa hjá Hafrannsónarstofnun deilu við fjármála- og efnahagsráðherra.
Fjórtán kjaradeilur eru því til meðferðar hjá embættinu.
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármála- og efnahagsráðherra var samþykkt í atkvæðagreiðslu Fíh. Tillagan var einnig samþykkt af fjármálaráðherra.
64,3 % hjúkrunarfræðinga samþykktu tillöguna en 34,9% sögðu nei. 0,8% tóku ekki afstöðu.
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var tæp 80%.
Þar með er kominn á kjarasamningur milli aðila.
Í samræmi við miðlunartillögu ríkissáttasemjara mun hann á næstu dögum skipa þrjá einstaklinga í gerðardóm til að fjalla um afmörkuð atriði launaliðar sem ágreiningur var um. Samningsaðilar náðu samkomulagi um meginatriði kjarasamnings þar á meðal um breytt vinnufyrirkomulag í dagvinnu og vaktavinnu.
Gerðardómur mun skila niðurstöðu í síðasta lagi 1. september nk.