„Ég hef stundum sagt það í gríni að fyrir einhver jólin gefi ég út bók með kveðskap og skemmtisögum úr Karphúsinu, það gæti orið metsölubók það árið. Ég læt fljóta með eina vísu af meinlausara taginu:
Allan daginn yfir engu hangir
æðir um og drekkur kaffið heitt.
Óskaplega eru dagar langir,
einkum þegar gerist ekki neitt.“
Þetta og fleira sagði Elísabet S. Ólafsdóttir , skrifstofustjóri embættis ríkissáttasemjara, í viðtali við Morgunblaðið árið 1997.