Á haustmánuðum 2020 var stofnað til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur og í framhaldinu sett upp ellefu verk, í eigu safnsins, í húsi embættisins.
Þar á meðal er serían Foldarskart frá 1998 eftur Hörpu Björnsdóttur; þrjár ljósmyndir sem skarta dýrindis vöfflum og öðru manngerðu í íslensku landslagi. Um um seríuna segir höfundur: „Verkið snýst um gróðursetningu, nýgræðinga og það sem þrífst í harðræðinu, um fegurð hins náttúrulega og fegurð hins manngerða, samspil þarna á milli og mat okkar á þessum hlutum jafnt í stóru sem smáu.“