Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari endurvakti vöffluhefðina í Karphúsinu í dag og lagði vöffluilm um húsið í fyrsta skipti í langan tíma. Aðalsteinn stóð vaktina og bakaði vöfflur í tilefni þess að samninganefndir Landssambands lögreglumanna og ríkissins skrifuðu undir kjarasamninga eftir langar viðræður.