Skip to main content

Borgartún 21

Höfðaborg, þar sem ríkissáttasemjari er til húsa, stendur við Borgartún 21. Borgartún er í landi Rauðarár sem var lögbýli milli jarðanna Reykjavíkur og Laugarness, þó reyndar sé það svo að bílskýlin standa að mestu á landfyllingu. Elstu heimildir um Rauðará eru frá árinu 1395, en árið 1885 keypti Reykjavíkurbær jörðina ásamt Laugarnesi og Kleppi. Svæðið, sem byggðist að mestu leyti upp á árunum 1939- 1950, var fyrsta svæðið í Reykjavík sem skipulagt var sérstaklega sem athafnasvæði með einkennum samfelldrar borgarbyggðar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á svæðinu undanfarna áratugi.

Borgartún 21, húsnæði embættis ríkissáttasemjara