Siðareglur
Almennar siðareglur
starfsmanna ríkisins
Þær reglur gilda hjá embætti ríkissáttasemjara, samkvæmt þeim ber starfsmönnum að:
- Starfa í þágu almennings af vandvirkni, heiðarleika og samkvæmt bestu dómgreind.
- Tileinka sér vinnubrögð sem skapað geta traust á starfi þeirra og stofnun.
- Vinna gegn sóun og ómarkvissri meðferð fjármuna.
- Efla vitund um jafnrétti og önnur mannréttindi.
- Stuðla að gagnsæjum starfsaðferðum og góðum samskiptum á vinnustað.
- Láta samstarfsfólk njóta sannmælis og sanngirni.
- Gæta að orðspori vinnustaðar í samskiptum utan vinnu.
- Hvetja samstarfsfólk til að leita réttar síns telji það á sér brotið.
- Koma fram við borgarana af háttvísi og virðingu.
- Virða skoðana- og tjáningarfrelsi.
- Forðast hagsmunaárekstra.
- Gæta þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf þeirra.
- Leita samvinnu um úrlausn mála eftir því sem kostur er.
- Standa vörð um óhlutdrægni og faglegt sjálfstæði.
- Vekja athygli viðeigandi aðila á ólögmætum ákvörðunum og athöfnum.
- Axla ábyrgð á eigin ákvörðunum og athöfnum
Hver starfsmaður gætir að því fyrir sitt leyti að farið sé eftir reglunum. Stjórnendur ríkisstofnana skulu ennfremur sjá til þess að starfsfólki sé kunnugt um reglurnar og að þær séu eðlilegur þáttur í starfi þeirra.
Fjármála- og efnahagsráðherra staðfesti ofangreindar almennar siðareglur starfsmanna ríkisins, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, í því skyni að efla fagleg vinnubrögð og auka traust á stjórnsýslunni. Við undirbúning reglnanna var haft samráð við samtök ríkisstarfsmanna, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Siðfræðistofnun Háskóla Íslands og samhæfingarnefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna.