Ársskýrsla ríkissáttasemjara fyrir árið 2016 er komin út og verður að þessu sinni eingöngu birt á nýrri heimasíðu embættisins, en ekki gefin út á prenti.
Þrátt fyrir að gerðir hafi verið færri kjarasamningar á árinu 2016 en árin á undan, voru verkefnin ærin og er ársskýrslan með veglegasta móti. Þar má finna upplýsingar um kjarasamninga sem gerðir voru hjá ríkissáttasemjara á árinu, vinnustöðvanir og fundafjölda hjá embættinu ásamt upplýsingum um rekstur og fjármál embættisins.
Þá er greint frá ráðstefnu norrænna ríkissáttasemjara sem var haldin á Íslandi á síðasta ári. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og skiptast embættin á að bjóða til fundarins.
Á árinu hóf ríkissáttasemjari vinnu við umbótaverkefni hjá embættinu og er greint frá þeirri vinnu í skýrslunni og þeim verkefnum sem af henni leiða.
Þá er í ársskýrslunni yfirlit yfir dóma og úrskurði Félagsdóms frá árinu 2000 – 2016 og frekari greining á þeim.
Ársskýrsluna má nálgast hér