Heildarstefna
Stefna ríkissáttasemjara skýrir meginhlutverk embættisins innan núgildandi lagaramma.
Framtíðarsýnin
er að samningur taki við af samningi og að almenn sátt ríki á vinnumarkaði
Ríkissáttasemjari stundar góða stjórnarhætti, fylgir settum lögum og vinnulagi í anda bestu leiða sem gefnar hafa verið út af Alþjóða vinnumálastofnuninni (ILO) og vinnur að framtíðarsýninni í góðri samvinnu og samskiptum við aðila á vinnumarkaði.
Meginhlutverkið
er að veita aðilum vinnumarkaðarins faglega, skilvirka og tímanlega þjónustu við lausn kjaradeilna
Ríkissáttasemjari rækir hlutverk sitt með áherslu á:
− Sáttastörf
− Fyrirbyggjandi aðgerðir
− Fræðslu og upplýsingagjöf
Gildin
eru fagmennska, skilvirkni og traust
Þau eru höfð að leiðarljósi í allri starfsemi embættisins.
Við stefnumótun hefur ríkissáttasemjari haft til hliðsjónar gögn og viðmið frá Stefnuráði Stjórnarráðsins, samhæfingar- og samráðsvettvangi innan stjórnsýslunnar.