19 sep 2022
kl.
08:00
–
21 sep 2022
kl.
17:00
Ríkissáttasemjari kynnir fimm námsstefnur í samningagerð.
Á námstefnunum verður stefnt saman öllum sem sæti eiga í samninganefndum og vinna að kjarasamningagerð í landinu. Þar gefst því einstakt tækifæri til að bæta vinnubrögðin við kjarasamningagerðina, læra nýjustu aðferðir, deila reynslu og efla marksækni og fagmennsku við samningaborðið.
Markmið námstefnanna
- Efla færni samninganefndarfólks
- Auka fagmennsku við kjarasamningaborðið
- Stuðla að órofa samningaferli
Í hnotskurn
- Þátttakendur: Allt samninganefndarfólk stéttarfélaga og launagreiðenda á Íslandi.
- Tímalengd: 3 dagar.
- Tímasetningar (þátttakendur velja eina dagsetningu/staðsetningu sem þeim hentar):
19-21 september 2022, staðsetning: Austurland (Hérað) - Verð: 95.000 á mann
- Innifalið í verði: Námskeiðsgjöld, námsgögn, gisting og matur.
- Kennslufyrirkomulag: Fyrirlestrar í stærri og minni hópum, vinnustofur og verkefnavinna.
Hæfniviðmið Að námskeiðinu loknu munu þátttakendur hafa öðlast:
- Þekkingu á lögum og leikreglum sem tengjast kjarasamningagerðinni.
- Þekkingu á þáttum sem stuðla að virðingu, trausti, fagmennsku og bestu niðurstöðum í samningagerð.
- Þekkingu á efnahagslegu samhengi og þjóðhagslegu mikilvægi kjarasamninga.
- Leikni til að takast á við hindranir í viðræðum.
- Leikni í samskiptum, tali, hlustun og fasi.
- Þekking, leikni og hæfni í undirbúningi fyrir margþættar samningaviðræður.
- Hæfni til að skipuleggja og vinna með heildarferli kjarasamninga, frá samningi til samnings.
- Hæfni til að semja vel og stuðla að gagnkvæmum ávinningi í kjarasamningagerð.
Námsstefnurnar byggja á virkri þátttöku í öllum verkefnum, vinnustofum og umræðum. Þeir þátttakendur sem taka þátt alla dagana fá viðurkenningarskjal þar sem fram kemur staðfesting á þátttöku í öllum liðum námsstefnunnar.
Til að bóka, vinsamlega sendið tölvupóst á elisabet@rikissattasemjari.is
Vinsamlega tilgreinið:
- nafn á greiðanda og kennitölu
- netfang greiðanda
- nafn þátttakanda
- kennitölu þátttakanda
- netfang þátttakanda.