Vísun kjaradeilu
Deilu vísað til ríkissáttasemjara
Ef slitnar uppúr samningaviðræðunum aðila eða annar hvor þeirra telur vonlítið um árangur af frekari samningaumleitunum getur hvor þeirra um sig eða báðir sameiginlega vísað deilunni til sáttasemjara. Ef aðeins annar aðila vísar nægir að hann einn undirriti vísunina. Í þeim tilvikum þar sem vísun er sameiginleg þurfa báðir aðilar að undirrita hana.
Samningsaðilar geta hvenær sem er eftir útgáfu viðræðuáætlunar óskað milligöngu sáttasemjara eða aðstoðar hans og skal hann þá þegar beita sér fyrir því að samningaumleitanir fari fram í samræmi við viðræðuáætlun.