Skil viðræðuáætlunar
Viðræðuáætlun sendist ríkissáttasemjara eigi síðar en tíu vikum áður en samningur rennur út. Þegar embættið hefur staðfest móttöku skjalsins telst það gilt. Ef samningsaðilar hafa ekki sent viðræðuáætlun til embættisins átta vikum áður en samningur rennur út gerir embættið áætlunina.
Vísun kjaradeilu
Aðilar að kjaradeilu, annar eða báðir, geta vísað deilunni til ríkissáttasemjara. Þegar móttaka vísunar hefur verið staðfest af embættinu er deilan formlega komin til meðferðar.
Skil atkvæðagreiðslu
Tilkynna ber ríkissáttasemjara niðurstöður atkvæðagreiðslna um kjarasamninga. Þegar embættið hefur staðfest móttöku telst formlegum skilyrðum fullnægt.
Boðun vinnustöðvunar
Boðun vinnustöðvunar verður aðeins tilkynnt til ríkissáttasemjara með bréfi þar um. Boðunin telst ekki gild fyrr en embættið hefur staðfest móttöku bréfsins.
Skil kjarasamnings
Skila ber samriti kjarasamninga til ríkissáttasemjara strax eftir undirritun, sem og breytingum á áður gildandi kjarasamningum, samriti kauptaxta og kjaraákvæða sem út eru gefin á grundvelli gildandi kjarasamninga. Embættið staðfestir móttöku þessara skjala.
Bókun fundaraðstöðu
Mögulegt er að óska eftir fundaraðstöðu án þess að máli hafi verið vísað. Úthlutun fer eftir fjölda og stöðu mála hjá embættinu.
Fyrirbyggjandi sáttastörf
Fyrirbyggjandi sáttastörf eru mikilvægur þáttur í starfsemi ríkissáttasemjara. Ferlið hefst áður en gildandi samningur rennur út og stendur þar til nýr samningur er í höfn eða máli er vísað.
Þín skoðun
Hjá ríkissáttasemjara leggjum við áherslu á traust, góða samvinnu, fagleg og skilvirk vinnubörgð. Upplifun þín og reynsla skiptir okkur máli.