Viðræðuáætlun
Senda viðræðuáætlun
Viðræðuáætlun, þar sem aðilar kjarasamnings gera áætlun um viðræðuferlið sem framundan er, skal send ríkissáttasemjara eigi síðar en tíu vikum áður en gildandi samningur rennur út. Skrifstofustjóri staðfestir móttöku skjalsins og telst það gilt frá staðfestri móttöku þess.
Ef samningsaðilar gera ekki viðræðuáætlun á tilskyldum tíma skal sáttasemjari gefa út slíka áætlun í síðasta lagi átta vikum áður en gildandi kjarasamningur er laus.
Samningsaðilar geta hvenær sem er eftir útgáfu viðræðuáætlunar óskað milligöngu sáttasemjara eða aðstoðar hans og skal hann þá þegar beita sér fyrir því að samningaumleitanir fari fram í samræmi við viðræðuáætlun. Samningsaðilar skulu gefa sáttasemjara kost á að fylgjast með vinnudeilu og samningaumleitunum hvenær sem hann óskar þess.