Merki
Einkenni ríkissáttasemjara er skjaldarmerki Íslands (línuteikning), heiti stofnunarinnar í hástöfum og tvær grannar línur í fánalitum fyrir ofan og neðan heitið. Leturgerð í heiti er Minion Pro Bold, óbreytt en slegið 300/em.
Skjaldarmerki Íslands er silfurlitur kross á bláum feldi, með rauðum krossi innan í silfurlita krossinum. Armar krossanna ná alveg út í rendur skjaldarins á alla fjóra vegu. Skjaldberarnir eru landvættirnar fjórar sem getur í Heimskringlu: Griðungur, hægra megin við skjöldinn, bergrisi, vinstra megin, ofan við griðunginn er gammur og loks dreki ofan við bergrisann.
Við notkun merkisins skal hafa í huga að óheimilt er að breyta því, tengja við annað merki, stofnun eða fyrirtæki.