Vinnumarkaðurinn í heild
Á íslenskum vinnumarkaði eru um 195.800 starfandi og af þeim eru um 86% meðlimir í stéttarfélagi. Sé vinnumarkaðurinn skoðaður í heild eiga 46% launafólks aðild að stéttarfélagi sem er aðili að ASÍ. 10% launafólks er aðili að stéttarfélagi innan vébanda BSRB, 7% að aðildarfélagi BHM og 7% eiga aðild að einhverju aðildarfélaga KÍ. Stór hluti launafólks á aðild að stéttarfélögum utan heildarsamtaka eða er ekki meðlimur í stéttarfélagi.
Samsetning vinnumarkaðar í heild: Heildarsamtök launafólks
Um 72% launafólks starfar á almennum markaði og 28% hjá hinu opinbera. Hjá ríkinu starfa um 15% launafólks og litlu færri, eða um 13% hjá sveitarfélögum.
Samsetning vinnumarkaðar í heild: Launagreiðendur
Almennur markaður
Á almennum markaði er flest launafólk aðilar að stéttarfélögum innan ASÍ, nær 60% en hlutur opinberu félaganna lítill. Aðrir vega tiltölulega þungt, eða um 37%, og ekki er ólíklegt að í þeim hópi sé töluvert af launafólki utan stéttarfélaga.
Almennur markaður: Heildarsamtök launafólks
Ríki
Hér er launafólk hjá ríkinu greint eftir bandalögum með sama hætti. Hlutur BSRB og BHM er mjög viðlíka, eða um 30%. Hlutur annarra er einnig stór eða næstum fjórðungur og ætla má að heilbrigðisstarfsfólk vegi þungt í þeim hópi, en stór félög heilbrigðisstarfsfólks svo sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélag Íslands standa utan heildarsamtaka.
Ríki: Heildarsamtök launafólks
Sveitarfélög
Um helmingur þess launafólks sem starfar hjá sveitarfélögum eru meðlimir í aðildarfélögum KÍ. Næst stærstur er hlutur BSRB, eða um fjórðungur sem er mun meiri en BHM. Hlutur ASÍ hjá sveitarfélögunum er um 17%.
Sveitarfélög: Heildarsamtök launafólks