Tilkynningar og vísanir
Samkvæmt lögum ber að tilkynna til ríkissáttasemjara um eftirfarandi þætti kjarasamninga. Framvegis er hægt að senda með rafrænum hætti viðræðuáætlanir, kjarasamninga, niðurstöðu atkvæðagreiðslna og vísanir deilumála. Þeir einir sem fara með umboð stéttarfélags/vinnuveitanda geta nýtt sér þetta og verður aðeins tekið gilt hafi starfsmaður ríkissáttasemjara staðfest móttöku. Verkfallsboðanir þurfa ávallt að vera skriflegar sem hingað til.
Uppsögn kjarasamninga og kröfugerð
Samningsaðilar skulu skv. lögum senda ríkissáttasemjara samrit af uppsögn kjarasamninga svo og kröfugerð, jafnskjótt og hún er send gagnaðila. Það er hægt að gera með rafrænum hætti í pdf formi.
Viðræðuáætlanir
Heimilt er að senda undirritaðar viðræðuáætlanir með rafrænum hætti í pdf formi. Skrifstofustjóri staðfestir móttöku bréfsins/skjalsins og telst það gilt frá staðfestri móttöku þess.
Kjarasamningar
Samkvæmt lögum skal senda samrit allra kjarasamninga til ríkissáttasemjara jafnskjótt og þeir hafa verið undirritaðir. Breytingar á áður gildandi kjarasamningum skulu sendar með sama hætti sem og samrit allra kauptaxta og kjaraákvæða sem út eru gefin á grundvelli gildandi kjarasamninga. Þetta er hægt að gera með rafrænum hætti í pdf formi. Skrifstofustjóri staðfestir móttöku þessara skjala.
Niðurstöður atkvæðagreiðslna
Niðurstöður atkvæðagreiðslna um kjarasamninga má tilkynna með rafrænum hætti, hvort heldur er í tölvupósti eða í pdf formi. Við staðfestingu á móttöku upplýsinganna telst formlegum skilyrðum fullnægt. Skrifstofustjóri eða sáttasemjari staðfesta móttöku.
Vísun kjaradeilna
Aðilar að kjaradeilu geta vísað deilunni til sáttasemjara með afriti af undirrituðu bréfi á pdf formi. Þegar sáttasemjari eða skrifstofustjóri hafa staðfest móttöku vísunarinnar er deilan formlega komin til ríkissáttasemjara. Svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en þrem sólarhringum frá rafrænni tilkynningu um vísun skal sama bréf berast sáttasemjara.
Boðun vinnustöðvunar
Boðun vinnustöðvunar verður aðeins tilkynnt til ríkissáttasemjara með afhendingu bréfs þar um sem staðfestir móttöku þess.






